Jæja... það kom að því að ég léti heyra í mér.
Við erum sem sagt flutt inn í Brekkutanga 9 og líður stórvel hérna. Við höfum nýtt allar frístundir til að framkvæma það sem þarf s.s. að mála og svona. Við þurftum að brjóta upp gólfið í þvottahúsinu og flota það því ílögnin var laus. Við erum líka búin að vera í vinnu allan tímann svo það eru bara kvöldin og helgarnar sem hafa verið notuð. Sjónvarp er t.d. eitthvað sem maður veit varla hvað er lengur hehe.
Haukur og Margrét eru búin að vera á kafi í prófum og prófalestri.... samræmdu prófin sko... og það er eins gott að standa sig :)
Viðar lagðist í einhverja ógeðslega flensu sem kannski er Einkyrningasótt... blóðið á eftir að segja til um það. En hann er orðinn nokkuð brattur í dag og við vonum bara að þetta hafi verið einhver pest sem er farin og kemur ekkert aftur.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... þvotturinn bíður (þó ég viti nú að hann fari ekki langt) en ég mátti til fyrst aðal heimilistölvan var orðin nettengd.
Elsk'ykkur
Hrafnhildur
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)