Já, sei, sei...
Það er í bókstaflegri merkingu ÓTRÚLEGT hvað tíminn líður hratt. Manni finnst maður bara vera að missa tökin á þessu... Það er nefnilega ekki heilt ár síðan síðustu jól voru, það er á hreinu! En maður verður víst bara að lifa með þessari vitleysu... og eldast í leiðinni... hrmpf!
Við erum annars búin að eiga yndislegan desember, mikið að gera og stuttur tími! (Dagarnir ekki eins langir og áður) Það er búið að vera jólaglögg í minni vinnu og jólahlaðborð hjá Múrbúðarstarfsmönnum sem var btw alveg geggjað! Við fórum á Nordica hótel í stóran sal og maður minn! ótrúlega flottur matur. Kalda borðið var með óteljandi réttum, hver öðrum flottari og í aðalrétt var bæði kalt og heitt kjöt. M.a. var heit hreindýralund sem var svo ljúf undir tönn að það þurfti ekki einu sinni að hafa tennur til að borða það! Þvílíkt ljúfmeti... enda hef ég sjaldan verið eins södd og eftir þennan mat. Eftirréttarborðið gaf hinum ekkert eftir, súkkulaðifrauð og búðingar o.þ.h. og til að toppa það voru ferskir ananasbitar og melónubitar á pinnum sem hægt var að stinga í súkkulaðifoss! Engin orð til yfir þessu öllu saman...........
Jólagjafainnkaup tóku sinn toll af desember og naut ég þeirra helling því við vorum svo heppin að fá endurreiknaðar vaxtabætur :) Ég meira að segja eyddi fullt í skraut og dót fyrir heimilið... sem ég geri mjög sjaldan á þessum árstíma. Leyfðum okkur líka að gefa börnunum okkar frekar rausnarlega í ár. Dásamlegt. :)
Ég bakaði ekki mikið fyrir þessi jól... (eins og ég sagði áðan var mjög knappur tími :) en hafði það af að baka fullt af "Sörum" með Lilju Björk vinkonu minni. Ég hef aldrei bakað þær áður og hélt það væri voða erfitt en það er það alls ekki... bara heilmikið föndur! En skemmtilegt samt.
Það sem af er jólunum er búið að vera dásamlegur tími líka að einu undanskildu... við höfum ekki haft Viðar eins mikið hjá okkur og við vildum. Hann vinnur nefnilega næturvaktir hjá Öryggismiðstöðinni og þurfti að fara á vakt kl. 20 á aðfangadagskvöld svo hefðirnar voru teknar með smátrukki svo hann gæti notið þeirra með okkur. Hann svaf síðan af sér jólaboðið hjá tengdó og mætti í vinnu aftur kl. 20 á jóladagskvöld sem er líka síðasta vaktin hans í þessari hrinu svo hann kemst með okkur í jólaboðið hjá minni fjölskyldu. Dásamlegt!
Jólaboðið hjá tengdó var mjög ljúft, borðað, hlegið og tekið fullt af myndum. Það er orðinn viss passi á jólunum að raða liðinu í sófann og taka myndir. Og þetta árið var mikið hlegið með...
Í dag förum við til mömmu í jólaboð og hlakka ég mikið til. Þennan dag gerum við svo margt saman stórfjölskyldan, spilum, syngjum, hlæjum og skemmtum okkur. Dásamlegt að eiga svona góða fjölskyldu.
Elska ykkur öll og njótið jólanna í botn.
Hrafnhildur
26.12.06
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)