Jæja elsku vinir mínir... Ég hef varla þorað að draga andann í langan tíma. En ég hef gleðifréttir að færa... KRÓKABYGGÐ ER SELD!!! :) Halelúja!
Það er nú ekki alveg laust við að pínu stress hafi verið farið að gera vart við sig hjá okkur... eða kannski helst mér yfir því að Krókabyggð myndi nú ekki seljast í tíma. En við eigum dásamlegan Guð sem svarar bænum.
Á mánudaginn í síðustu viku voru fyrstu merki um einhvern verulegan áhuga hjá fólki á íbúðinni okkar, það hafði áður komið fullt af fólki að skoða en einhvern veginn fannst mér allt voða vonlaust eitthvað. Við heyrðum aldrei neitt meira eða neitt. En svo á mánudeginum kom fólk aftur sem hafði komið áður og hafði virkilegan áhuga. Á þriðjudeginum voru tveir búnir að boða komu sína snemma um kvöldið; ein kona kl. 17 og annar kl. 18.30 svo þegar ég kom heim um fjögurleytið þá hringdu tveir í viðbót! Þannig að ég var mjög ánægð með það. Sú sem kom kl. 17 var rosa áhugasöm og þegar allir hinir voru búnir að skoða hringdi hún aftur og bað um að fá að koma með manninn sinn... (sem hún er btw að skilja við!) Það var vitaskuld ekkert mál og þau komu um kl. 20.30. Fólk hreinlega mættist í dyrunum :) Áhuginn var ekkert minni við seinni heimsóknina og ég hafði góða tilfinningu gagnvart henni. Við vorum rétt sest við sjónvarpið um níuleytið þegar síminn hringdi og kona spurði hvort hún væri nokkuð dónalega að fá að koma svona seint um kvöld... ég hélt nú ekki og bauð hana velkomna. Hún og maðurinn hennar voru mjög áhugasöm líka og töluðu hreinlega um að tala við fasteignasalann daginn eftir. Þetta þriðjudagskvöld fengum við sem sagt 6 heimsóknir! Kl. 9 morguninn eftir var sú sem kom tvisvar kvöldið áður mætt til fasteignasalans :) Þau teiknuðu eitthvað á blað og hún fór í bankann... á meðan hún var í bankanum... höfðu tveir aðrir; sá sem kom í annað sinn á mánudagskvöldinu og sú sem kom síðust á þriðjudagskvöldinu, samband við fasteignasalann til að gera tilboð... Þegar svo konan kom aftur úr bankanum gerði hún tilboð... sem við höfðum daginn til að melta. Hitt fólkið var sjóðheitt allan tímann en tilboðið sem konan gerði var svo gott (uppsett verð... á borðið!) að þau treystu sér ekki í slag. :) Við skrifuðum því undir kauptilboðið í lok dags.
Nú höfum við beðið og beðið (verið að bíða og biðja) :) eftir að fá staðfestingu hjá bankanum hennar um að lánið hennar gengi í gegn og í dag fengum við þá staðfestingu!
Svo nú er tóm hamingja á okkar bæ. Það stendur til að skrifa undir kaupsamninginn á föstudag eða mánudag og ég hlakka svoooo til!
Við þurfum að vísu að fara fyrr út úr okkar íbúð heldur en við fáum nýja húsið svo við verðum á vergangi í ca mánuð en við eigum dásamlegar fjölskyldur sem hjálpa okkur. Það gæti orðið krísa með hluta af búslóðinni en við erum bjartsýn... kannski fáum við að setja eitthvað af því inn á nýja staðinn þótt þau verði ekki farin út sjálf.
Við notuðum helgina til að ganga frá öllu geymsludótinu okkar og koma því fyrir í bílskúr sem við höfum á leigu með tengdó. Við erum svo í rólegheitunum að pakka saman öllu dra.. úps.. dótinu okkar tíhíhí...
Af Þulu er allt frekar rólegt að frétta... hún hefur ekki haltrað í dágóðan tíma og við vonum bara að hún læknist alveg. Við ætlum að vera bara róleg með hana og láta tímann leiða í ljós hvað gerist. En ræktendurnir eru ekki alveg að haga sér eins og fólki finnst eðlilegast svo við ætlum ekkert að "púkka" upp á þær meira í bili.
Njótið lífsins kæru vinir...
Hrafnhildur
7.3.07
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)