23.8.06

Þungir dagar

Ég er eitthvað svo þreytt þessa dagana að það hálfa væri nóg. Ég byrja á einhverjum helling en klára ekki neitt! Ágúst fór á skytterí á Kjöl eins og hann hefur gert í "tugi" ára og ég ætlaði svo sannarlega að gera mikið á meðan. Ætlaði að taka húsið í gegn og heimsækja fullt af fólki og hreyfa mig í gönguferðum og ég veit ekki hvað og hvað. Ágúst er kominn heim aftur... Hvert fór tíminn? Skil það ekki... Við vorum eiginlega bara tvö heima ég og Haukur, Margrét er búin að vera í heila viku með Rakel og co fyrir norðan á sveitasetri vina þeirra. Mjólkaði beljurnar á morgnana og fór á hestbak tvisvar á dag, sannkölluð paradís fyrir svona náttúrubarn eins og hún er.
Í dag var svo fyrsti dagur í rútínu lífsins. Krakkarnir mættu í skólann og sóttu stundaskrárnar sínar, við fórum svo í bæinn seinni partinn og keyptum það sem vantaði uppá skóladótið. Mikið er ég nú fegin að það fer að komast skipulag á svefn- og vökutíma. Þau ætla að taka þennan vetur með meiri skynsemi en í fyrra enda held ég að þau geri sér þokkalega grein fyrir að þetta er mikilvægur vetur sem undirbúningur fyrir framhaldsskólagöngu.
Nú er ég geyspandi og geispandi (hmm er ypsilon eður ei???) og Supernova glymur í eyrunum á mér. Held ég hendi mér bara í sturtu og svo á koddann...

ZZZZZzzzzzzzzZzZzZzZzZz