Hrmpf... Ég er hrikalega fúl yfir úrslitum Söngvakeppninnar. Þetta verður til þess að það verður ekki næstum eins gaman að horfa á aðalkeppnina í maí. Ég var svo viss um að Eldur og Friðrik Ómar myndu vinna að ég spáði varla í að það gæti farið öðruvísi. En... svona er víst lífið... Pðe...
Ágúst er erlendis þessa helgi. Hann fór með vinnunni sinni á fimmtudagsmorgun og kemur aftur heim í kvöld. Þeir flugu til Oslóar og keyrðu þaðan í einhverja 5-6 tíma á fjallahótel í Svíþjóð því þeir þurftu að heimsækja fyrirtæki þar og fara á námskeið. Á föstudaginn keyrðu þeir nánast alla leiðina til baka aftur í eitthvað svakaflott bjálkahús sem fyrirtækið á. Öll kynding með kamínum o.þ.h. Meira að segja heiti potturinn er hitaður með viðardrumbum. Geggjað. Þaðan fóru þeir í gær í vélsleðasafarí m.a. til að reyna að sjá elg, það tókst ekki en þeir elduðu matinn sinn yfir opnum eldi áður en þeir héldu til byggða, meiriháttar ævintýraferð.
Sala á Krókabyggð gengur hægt en þó eru alltaf einhverjir að droppa inn og skoða.
Ég var nú að mestu leyti komin yfir áfallið að verða fertug þegar ég sá forsíðuna á Fréttablaðinu í gær. Það stóð: "Miðaldra konur með fíkniefni innvortis" og undir stóð: "Tvær konur á fimmtugsaldri teknar af tollvörðum..." Say no more...
Kveð í bili
Hrafnhildur á tímamótum
5.2.07
Á fimmtugsaldri...
Úfff... ef ég gerði eitthvað nógu merkilegt til að komast í blöðin þá myndi það hljóma svona: "Kona á fimmtugsaldri..." Ég veit ekki með ykkur en ég sé fyrir mér einhverja ömmu úti í bæ!
Takk annars elsku vinir mínir fyrir hamingjuóskirnar hér í commentunum.
Helgin var frekar róleg hjá mér þrátt fyrir þennan stóra þröskuld sem ég klofaði yfir með erfiðismunum :) Ég eyddi fyrri hluta afmælisdagsins við að þrífa og taka til, alein heima. Ágúst og Haukur voru að vinna, Viðar var sofandi eftir næturvakt og Margrét fór til Vestmannaeyja að keppa í handbolta. Ég hafði svo matinn snemma, djúsí kjöt og sonna... og svo höfðum við það bara huggulegt við kertaljós og rómantík tíhíhí...
Sunnudagurinn var líka bara rólegur, vorum komin í bæinn til að fara í Ikea og svo á samkomu en þá hringdi kona sem vildi koma með fjölskylduna sína að skoða íbúðina hjá okkur svo við brunuðum bara heim aftur.
Það kom tvennt að skoða í kvöld. Fyrst hjón með 2 dætur og síðan eldri hjón sem voru að skoða fyrir son sinn sem er að flytja frá Sauðárkróki. Við biðjum þess að eitthvað komi nú út úr þessu öllu saman.
Nóg í bili...
Habbla gamla...

1.2.07
Update...
Jæja... tilraun til að blogga oftar :)
Ætla að byrja á að tala um hana Þulu okkar. Framtíðin hennar lítur ekkert sérlega vel út. Hún er farin að haltra á hinum fætinum og við fórum með hana í röntgen myndatöku. Þar kom í ljós að fóturinn sem búið er að skera tvisvar er orðinn lélegur aftur þ.e. liðurinn laus og ekki nóg með það þá er hinn fóturinn orðinn laus líka sem þýðir að það kemur til með að þurfa að skera hann. Á myndunum sást líka gigtarmyndun í liðunum, meira þeim megin sem búið er að skera en minna hinum megin. Nota bene... hún er nýorðin eins árs! Hún kemur aldrei til með að mega spretta úr spori, þarf alltaf að nota taum og má aldrei hoppa uppá eða niður af einhverju. Hún má ekki fara yfir 30 kg. og hún er horuð þannig! Hún má ekki verða ólétt því fæturnir þola ekki þyngdaraukninguna. Er þetta eitthvað líf?
Ræktendurnir komu í heimsókn til okkar og þeirra ráð var nú bara að "fjölskyldan þyrfti að setjast niður og gera sér grein fyrir því að þetta væri ekkert líf fyrir hundinn" Við vitum ekkert hvert framhaldið verður. Röntgen myndirnar verða sendar út næstu daga til einhvers sérfræðings sem ræktandinn er í sambandi við og Þula greyið er bara á "hold" þangað til við fáum einhver svör þaðan. Þetta verður ekki auðvelt skal ég segja ykkur...
En að skemmtilegri hlutum... við skrifuðum undir kaupsamninginn af Brekkutanganum í gær og erum alsæl með það. Við lifum í trú um að Krókabyggð seljist tímanlega og að allt gangi vel með það. Og ég vil ekki heyra neinar hryllingssögur eða hrakspár um eitthvað annað :)
Þessi vika er búin að vera ótrúlega erilsöm, á mánudagskvöldið fórum við í stutt og laggott matarboð til tengdó, þau reyna yfirleitt að hóa öllum saman í steiktan fisk þegar Norðanfólkið kemur suður í menninguna og finnst mér það mjög góður siður. Þá þurfa þau (Norðanfólkið... sem er Jón bróðir Ágústar og fjölskylda) ekki að eyða tímanum í að heimsækja alla.
Þegar það var búið komu ræktendurnir í heimsókn.
Á þriðjudaginn var Alfa 2 niðri í Fíló kl. 19-22, frábært alveg að vera á Alfa... mannbætandi hreinlega.
Í gær fór ég að vinna fyrir Hlaðhamra frá 16-18:30 í námskrá skólans. Þaðan fór ég svo beint niður í kirkju á Alfa 3... Það er alveg frítt og opið öllum... skemmtilegir lestrar og pælingar. Á meðan Alfa 3 er fyrir fullorðnafólkið þá er Royal Rangers ofl fyrir börnin. Við byrjuðum í heimahóp hjá Verði og Esther strax eftir Alfa 3 og vorum þar til kl. rúmlega 23! Einstkalega ljúf stund... en langur dagur hehe...
Í dag kl. 16 fer ég svo að vinna hjá Lovísu, sem á leikskólann Regnbogann á Ártúnsholtinu. Eitthvað bögg í tölvunum þar og eins heima hjá henni.
Held ég sé laus annað kvöld :) Jenný sem vinnur hér við hliðina á mér fór einmitt að hlæja í gær eftir eitt símtalið og sagði að ég væri farin að hljóma eins og læknaritararnir... "jú... ég á lausan tíma þennan dag kl. þetta.... " Skondið :)
Ég er sú lélegasta í heimi að fara í heimsóknir til vina minna og fjölskyldu... því miður :( svo ég ætla að reyna að skrifa sem mest hingað inn á bloggið... ég vona samt að mér takist að snúa þessu við. Elska ykkur nefnilega alveg hrúgu eins og sumir segja :)
Matartíminn búinn... Over and out
Hrafnhildur upptekna...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)