31.5.06

Svadilför í Loro Parque

Jaeja nú sitjum vid systurnar vid sitt hvora tölvuna og segjum frá aevintýrum dagsins.
Vid lögdum í hann kl. 10 í morgun áleidis á nordurhluta eyjunnar á bílaleigubíl. Fengum rosaflottan Hyondai 9 manna med loftraestingu og stereo graejum. Ferdin byrjadi ágaetlega, vid hittum á hradbrautina og leidin lá beint í Loro Parque. Á leidinni thurfti einn ad pissa svo tad var beygt af hradbrautinni á bensínstöd, sídan var thad haegara sagt en gert ad komast aftur út á hana, en thad hafdist. Á midri leid kvíslast hradbrautin annars vegar nidur í Santa Cruz og hins vegar áfram nordur... thar komumst vid í hann krappann... aetludum ad snúa vid en fórum útaf malbikinu med aftudekkid og bíllinn sat á bitanum... fríhjóladi ad aftan... úff... en med lagni, tíma og fullt af sterku fólki tókst okkur ad ýta honum upp aftur, og finna rétta leid út úr thessu. Svo gekk nú nokkud greidlega ad komast ad Loro Parque og leggja bílnum thar.
Thetta var mjög skemmtilegur gardur og sáum vid höfrungashow og saeljónashow sem var ógissslega flott... ég og Ágúst sáum svo páfagaukashowid á medan hinir voru í Kinderland. Vid vorum misjafnlega threytt eftir thetta allt saman og allir glorhungradir svo vid stoppudum í Shell Select og keyptum okkur samlokur... m.a. med krabbasalati sem var vaegast sagt ógedslegt á bragdid. Svo var haldid heim á leid. Thad gekk ágaetlega fyrir utan einhvern rúnt sem ég var ekkert spennt yfir... sat á mér og reyndi ad thegja en mér fannst thetta ekkert fyndid ... thá... :) Hafrún hló nú helling ad mér og sagdi ad ég vaeri hundpirrud en ég vidurkenni thad nú ekki svo glatt... :) Vid tókum svo smárúnt í Los Christianos á heimleid sem er baer rétt hjá okkur ádur en vid komum heim á hótel. tad var alltof mikil olía eftir á bílnum svo Ágúst og Vidar eru ennthá á rúntinum um strandsvaedin hér í kring. Vona ad their skili sér nú heim á hótel villulaust... :) :)
Thad var skýjad eiginlega í allan dag, baedi hér og thar sem vid vorum svo vid misstum ekki af neinu hér á sudurhlutanum heldur.
Thá er bara eftir ad fara í Aqualand og á markadinn og thá erum vid búin ad gera allt sem vid aetludum okkur annad en ad liggja í sólbadi :)
Bid ad heilsa ad sinni, er farin ad gera eitthvad skemmtilegt.
Adios
Hrafnhildur

30.5.06

Geggjadur dagur

Ola...
Vid Ágúst áttum gedveikan dag uppi í haesta fjalli Spánar og thridja staersta eldfjalli heims. Vid sáum svakalega náttúrufegurd. Vid fórum í rútu upp í 2200 m haed og thadan med kláf sídustu 1300 metrana og thad var rosalegt. Fólki var trodid inn í kláfinn thannig ad madur var med nefid á naesta manni í hnakkanum, og ferdin tók ekki nema 8 mínútur. Útsýnid var svakalegt. Sá sem fer til Tenerife verdur ad sjá thetta... en ég maeli ekki med ad litlir krakkar fari thessa ferd. Löng rútuferd og hrikalegt landslag. Mamma: Thú hefdir dáid á leidinni thví thetta var svakalega bratt. :)
Nú erum vid ad fara ad borda svo ég bid ad heilsa ad sinni.
Adios
Hrafnhildur

smátíst

Ola.. ola...
Smáhljód... hef 3 mín... Allir ennthá sofandi nema vid Ágúst sem erum ad fara í fjallaferd upp á haesta fjall Spánar... í kláf! úfff... Leyfi ykkur ad fylgjast betur med...
Adios
Hrafnhildur

27.5.06

Og aftur frá Tenerife

Ola...
Tetta er bara frábaert, í gaer vorum vid á strondinni og bekkjunum allan daginn og vorum hundtreytt og fórum ad sofa um 11:30. Ég var rétt búin ad festa svefn tegar ég hrokk upp med andfaelum og hélt nú ad tridja heimstyrjoldin vaeri hafin. Tad voru tvílíkar bombur og skothrídar ad mér stód ekki á sama... og ef ég hefdi verid gomul kelling tá vaeri ég daud núna! Tessi skothríd haetti ekki neitt og ég leit út og engir blossar eda neitt, svo fórum vid út á svalirnar og tá var tetta bara flugeldasýning. Ég var alla nóttina ad jafna mig á tessu... úffff... en svo voknudum vid í morgun um 8.30 og hlupum upp á Tenerife Princess hótel og tókum rútu í Jungle Park kl. 9.35... rétt nádum! Og tar vorum vid í ALLAN dag... Sáum oll heimsins villtu dýr naestum tví og allir skemmtu sér konunglega. Tad voru tvaer fuglasýningar... annars vegar páfagaukasýning og hins vegar sýning med ornum og odrum stórum fuglum. Tar voru líka ljón og tígrísdýr, krókódílar og flódhestar, apar og slongur og hellingur í vidbót af framandi dýrum, enda tók tad allan daginn ad klára ad skoda gardinn. Vid Ágúst tókum samtals 600 myndir í dag svo tad verdur ágaetismyndashow tegar vid komum heim :)
Nú var ég ad koma úr hradbankanum tví tad er ótrúlegt hvad peningarnir gufa upp... og ákvad ad koma vid í tolvunni í lobbýinu. Tad er nefnilega ekki haegt ad fá internetid inn á íbúd :(
En elskum ykkur oll og hlokkum til ad koma heim... naestum tví... tíhíhíhí...

kvedja frá ollum
Hrafnhildur

26.5.06

Fyrsta blogg frá Tenerife

Hallo allir...
Vid erum búin ad hafa tad frábaert hérna. 22-25 stiga hiti og allir ordnir vel grilladir. Strondin er bara rétt hjá okkur og vid erum búin ad synda í sjonum og allt. Krakkarnir eru ad fíla tetta í taetlur og eru farin ad spá í ad flytja hingad. Og vitid bara hvad... ég keypti mér bikini og spranga á tví út um allt...!!! Never thought so in a million years.. hehe.. en tad er alls konar fólk hérna og ég er ekkert verst. Nú fer tíminn minn ad verda búinn svo ég aetla ekki ad hafa tetta lengra... veit ad Hafrún aetlar ad blogga fullt um leid og hún kemst í tad.
Sendum sjódheitar kvedjur heim til Íslands og reynum ad blogga oftar og lengur naest.

Love Hrafnhildur og fjolskylda.

21.5.06

Eurovision o.fl.

Jæja, Eurovision lokið og Finnland vann. Ekki alveg það sem ég óskaði mér en frábært fyrir Finna því þeir hafa þráð svooo lengi að vinna þessa keppni. Ég hefði sko viljað vera nálægt Thomas Lundin við stigagjöfina. Hann er svooo krúttlegur. (Finnski spekingurinn úr Norrænu þáttunum um Eurovision.) Ég hefði viljað sjá Úkraínu vinna, annars þegar ég er búin að hlusta svona oft á öll lögin þá finnst mér þau öll góð og á erfitt með að gera upp á milli. Mér fannst sú úkraínska minna mig á Shakiru og ég er alveg að fíla hana. Mín uppáhalds voru: Úkraína, BosniaHerzegovina, Króatía, Rúmenía, (sjáið nú hvað ég er orðin austur-evrópsk hehe... þeir gera bara einfaldlega ótrúlega skemmtilega tónlist, þess vegna vildi ég lagið hennar Regínu Ósk í keppnina fyrir okkur, það var dálítið þannig sko) Svo fannst mér Svíþjóð, Noregur og Danmörk líka ágæt, í þessari röð :) Belgía og Holland hefðu að mínu mati átt að komast í úrslitakeppnina en því miður ræð ég ekki. Rússneska lagið var allt í lagi en mér fannst hræðilegt að horfa á hann syngja strákræfilinn! Mér finnst líka fáránlegt af sjálfskipuðum Eurovision spekingum að halda því fram að trumbusláttur sé bara úreltur af því að allir voru með svoleiðis í fyrra! Svo segja þeir í næstu setningu að það sé ömurlegt að það komi svona tískusveiflur. Iss piss... allavega finnst mér bara ekki skipta máli hver stíllinn er ef lagið er skemmtilegt. En... ég ætla að hlusta á öll lögin milljón sinnum í viðbót... bæði komið á cd og ipod á heimilinu.

Nú styttist óðum í sólarlandaferð fjölskyldunnar... úfff... allir hlakka voða mikið til. Ég er samt hundstressuð yfir þessu, veit ekkert hvort ég höndla svona hita og svo á ég svooooo lítið af svona efnislitlum fötum, ekki alveg minn stíll nefnilega. Við erum búin að taka fram töskurnar og erum smátt og smátt að setja í þær. Ég hlakka samt heilmikið til að sjá allt þarna úti; landið, dýragarða, ströndina (aldrei komið á svoleiðis) og allt hitt bara. Ágúst er búinn að liggja á netinu og stúdera það sem við ætlum að gera. Meira að segja fann hann litla "orðabók" eða algengustu orðin sem ferðamenn nota, fyndið það. Non comprendo, escribamelo, por farvor = Ég skil þetta ekki, viltu skrifa það niður? Hehe...

Núna eru allir á heimilinu steinsofandi nema ég, enda get ég aldrei sofið frameftir, lengst til 9 eða 9.30 alveg sama hversu seint ég fer að sofa... en ég get auðveldlega seinni part dags sest í stofusófann og hengt haus. Og vitið þið hvað ég er að gera? ... Hlusta á Eurovision lögin, tíhíhí...
Jæja, nóg af bulli í bili.
Hrafnhildur

10.5.06

Tíminn flýgur... c")

Vá... Í janúar þegar ég pantaði ferð til Tenerife var næstum hálft ár þar til við færum í sólina... nú eru bara tvær vikur! Við vorum að vísu í sól og blíðu um helgina, fórum í sumarbústað í Skyggnisskóg sem KB banki á og það var bongó blíða alla helgina. Það var heitur pottur og við tókum með okkur fullt af bombum (ómissandi í heita pottinn sko). En það var einn galli við það... um leið og við settum bombur í pottinn, með alls konar blómailmi, þá fylltist allt af randaflugum! Og það ekkert smá stórum! Þetta voru bara algjörar hlussur... næstum því fuglar! Úff... mér hefur aldrei líkað við randaflugur... en eftir að geitungarnir réðust inn í landið okkar þá eru þær þó skárri. En við áttum sem sagt góðar stundir í sumó, máttum vera með Þulu með okkur og allt! Við hjónin fórum með Þulu í gönguferð kl. rúmlega 8 á sunnudagsmorgun. Æðislegt að vera svona úti þegar enginn er vaknaður, verst bara að ég skemmdi skóna mína... pff..

Ég fór í hádeginu í gær að sækja um vegabréf fyrir strákana mína. Haukur hefur aldrei átt svoleiðis en Viðar fékk vegabréf þegar hann fór til Svíþjóðar með kirkjukrökkunum fyrir rúmu ári síðan en það gjörsamlega gufaði upp svo við ákváðum bara að sækja um nýtt og tilkynna þetta glatað. Ég var samviskusamlega búin að fylla út alla pappíra, umsóknir, fylgiskjöl og tilkynningu þegar hún sló inn kennitölunni hans Viðars til að tilkynna glatað vegabréf. Og viti menn... hún segir: "Heyrðu, þetta vegabréf er hér!" og þar var ég sko bænheyrð því ég er búin að biðja og biðja um að vegabréfið hans myndi finnast áður en ég þyrfti að eyða 5000 krónum í nýtt. Segið svo að Guð bænheyri ekki :) Hann er bestur.

Nú er ég í geðveikum Eurovision fíling. Búin að dowloada öllum lögunum og hlusta á þau fram og til baka. Mörg þeirra eru barasta mjög góð. Mér líkar vel við Makedóníu, Rússland, Bosníu, Armeníu og mörg fleiri. Dilla mér bara meðan ég er að læra að þekkja lögin. Það jafnast fátt við Eurovision. Ótrúlega skemmtilegt hobby ;)

Jæja... góða nótt í bili... set fljótlega inn myndir úr sumóferðinni.
habbidu

3.5.06

Andvarp...

...ég er orðin svooo þreytt á að tína upp brotin hjá börnunum mínum eftir að krakkarnir í skólanum eru búin að brjóta þau niður... Margrét hefur að vísu sloppið mjög vel en Viðar fór ekki vel út úr gagnfræðaskóla og Haukur er að lenda í því aftur og aftur að strákarnir láta hann ekki í friði. Ég fór og talaði við kennarann hans í gærmorgun og mér líst vel á hans viðhorf gagnvart þessu. Hann lætur þessa stráka heyra það og er ekkert að láta þá komast upp með leiðindi. Þetta er hins vegar búið að brenna Hauk svo að sjálfsmyndin verður nánast engin og hann verður hálf "paranoid" yfir þessu. Það eru allir á móti honum, hann á enga vini og allt í þá áttina. Í dag fékk hann að vísu góðar fréttir, hann fékk vinnu hjá verktaka sem er í hellulögnum o.fl. svo hann ætlar að verða ríkur og sterkur eftir þetta sumar hehe.
Við skruppum í fjöruferð í Hvalfjörð um helgina og það var rosa gaman. Þula fór að synda í sjónum og krakkarnir tíndu fullt af steinum. Hafrún kom með okkur með Emil Agnar, Almar Frey og Ástu Margréti. Það sem er skemmtilegast við þessa fjöru að mínu mati eru Baggalútarnir. Skemmtilegir steinar, alveg kúlulaga. Einver sagði mér að þeir fyndust hvergi á Íslandi nema í Hvalfirði. Gaman að því. Það fór svo að rigna á okkur svo við drifum okkur bara í bílinn og aftur í bæinn. Maður þarf að fara oftar í Hvalfjörðinn... hann gleymist einhvern veginn eftir að þessi göng voru gerð.
Við ætlum að skreppa í sumarbústað þessa helgi, í Biskupstungur, og vitið þið hvað... það má hafa hunda þar! Mér finnst það geðveikt. Hlakka ekkert smá til. Þrúður vinkona og Gunni buðu okkur með sér. Heitur pottur og alles. Maður má ekki klikka á bombunum. :) :)
Jæja... ætla að klára að finna mynd af Viðari til að setja í vegabréf... vegabréfið sem hann fékk í hittifyrra er gjörsamlega gufað upp... ekki gott...
Skjáumst síðar
habbidu

ES. Er búin að setja slatta af myndum á ljósmyndasíðuna, þ.á.m. myndir frá Tenerife frá mömmu og pabba