Já, ég held að ég verði nokkuð sátt hér á blogspot. Þetta er líka tilvalin leið til að rifja upp alla html vinnsluna sem ég lærði fyrir nokkrum árum. Mér finnst svo magnað að geta raðað bara upp stöfum og táknum og það breytist í eitthvað annað skemmtilegt. :)
Ágúst skrapp núna út að labba með Þulu og ég ákvað að setjast við skjáinn á meðan. Ég geyspa að vísu út í eitt en það er allt í lagi... er alveg að fara að sofa. Ég er búin að vera svo löt hér heima undanfarið að það er leitin að öðru eins, held ég þurfi að fara að bryðja vítamín eða eitthvað.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni... Ágúst fór greinilega lítinn labbhring :) Kannski maður ýti á play á Prison Break 19 :) Skelfing hvað maður verður háður þessu hehe.
Gútnæt
Hrafnhildur sybbna.
22.4.06
Óánægð alls staðar!
Hvað á ég að gera? Hvar á ég að vera? Mér finnst öll bloggsvæði vera hundleiðinleg þessa dagana. Þoli ekki þegar hlutirnir virka ekki eins og ég vil að þeir virki!!! Vá.. ein sjálfhverf hehe.
Nei, án gríns þá veit ég ekki af hverju ég læt svona, einhver óróleiki í mér eða eitthvað. Að öðru leyti er ég nú þokkalega sátt sko, vor í lofti og svona. Ég er meira að segja búin að vera í fríi meira og minna þennan mánuðinn, frábært að geta nýtt sér svona daga. Að vísu átti að taka vinnutölvuna mína í gegn í gær en ég frétti seinnipartinn að það hefði ekki verið gert. Hundfúlt en verður víst að hafa sig.
Nú styttist óðum í Tenerife og ég bæði kvíði því og hlakka til. Fékk smá "reality" sjokk í gær þegar ég horfði á þáttinn: What not to wear on vacation. Og nú er bannað að hlæja að mér :) Ég kann barasta alls ekki að fara til sólarlanda! Eins gott að Hafrún kemur með mér. Ég er nú svo vitlaus að ég hlakka miklu meira til að fara í útilegur í flotta fellihýsinu mínu þegar ég kem heim heldur en að spóka mig einhvers staðar sem ég þekki engan og ekkert. En... ég hef aldrei verið talin "heilbrigð" þegar kemur að þessum umræðum. Kannski læknast ég í útlandinu... vonum það bara.
Rosalega er ég nú montin yfir að hafa ekki farið út í að kaupa mér nýtt hús í vetur. Held að við hefðum hoppað út í djúpu laugina ósynd og án kúta og korks ef við hefðum haldið þessu áfram. Við ætlum bara að vera róleg og sátt með það sem við höfum. Það er hunderfitt að fara til baka úr svona draumum um stærra húsnæði en skynsemin ræður. Þetta gerist bara þegar tíminn er réttur... ef þetta á að gerast þ.e. Rakel systir er loksins búin að selja sitt, eða réttara var það Margrét mín sem seldi fyrir hana því þegar Rakel og Sævar skruppu til Ítalíu um daginn þá sýndum við Margrét íbúðina og Margrét var svo klár að vita svörin við öllum spurningunum þeirra að þau keyptu bara. Rakel hefur ekki einu sinni séð fólkið sem kaupir... bara sniðugt. Svo fá þau húsið sem þau keyptu í byrjun júní en þurfa ekki að afhenda sitt fyrr en 25. júní svo þau hafa smátíma til að koma sér fyrir. Og þau verða líklega nýbúin að því þegar þau fjölga mannkyninu... skemmtilegt nokk. Hafrún greyið á voða bágt þessa helgina, braut á sér lillutá og Almar Freyr er með Skarlatsótt... oj bara.
Ég var að aðstoða börnin mín aðeins með heimalærdóminn áðan og hrikalega eru þau orðin "fullorðin" hehe. Þau eru að gera ritgerð um Mávahlátur og þetta er bara eins og framhaldsskólavinna! Og þau eru ótrúlega klár í þessu. Enda líður tíminn ótrúlega hratt... þau fara í 10. bekk næsta vetur og svo í framhaldsskóla... og hvað gerir það mér??? Mér finnst ég verða eldgömul... mér fannst mamma mín ótrúlega gömul þegar ég var á þessum aldri. Mér finnst ég aftur á móti ennþá vera á þessum framhaldsskólaaldri! Jæja nóg um það... ætla að halda áfram að undirbúa grillmatinn... er að bíða eftir að Ágúst komi heim úr vinnunni... ætlum að grilla heimakryddlegið folaldakjöt... mmmm... það er besti grillmatur EVER!
Over and out (Úff... held að þetta blogg sé bara bull í belg og biðu)
habbidu

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)