30.7.06

Eydís Ósk prinsessa

Í dag fékk hún litla frænka mín nafnið Eydís Ósk. Fallegt nafn á enn fallegri stúlku. Hún var skírð heima hjá sér af séra Kristínu Þórunni Tómasdóttur, héraðspresti í Kjalarnesprófastsdæmi.
Nánustu ættingjar bæði Sævars og Rakelar voru viðstödd og var þetta hin fallegasta stund. Ásta Margrét fékk að segja nafnið hennar þegar presturinn spurði og fannst það rosalega spennandi. Á eftir úðuðum við svo í okkur kræsingunum sem í boði voru...mmmm...

Vikan er búin að vera erilsöm í vinnunni... síðasta vika fyrir útborgun og nóg að gera, sem er bara gott. Öll börnin mín eru líka búin að standa sig rosa vel í sínum vinnum, Viðar náttúrulega hjá Matfugli í útkeyrslu, Haukur hjá Mottó og Margrét í Blend. Og öll eru þau að fá hrós fyrir duglegheit... ekki amalegt það. Svo var Ágúst kallaður á "teppið" í vikunni, sem hann fór á með pínu fiðrildi í maganum og það var auðvitað allt gott þar, launahækkun og alles ;) Nú bíð ég bara eftir að "Bossinn" minn komi úr fríi og vona að hann kalli mig á teppið hehe.

Á föstudaginn fór ég við jarðarför afabróður míns hans Ninna. Hann er stór partur í minningabunkanum mínum frá sveitardvölinni þegar ég var krakki og unglingur. Hann var endalaust þolinmóður að koma í sjoppuna þegar við bönkuðum uppá hjá honum, þótt maður væri kannski bara með tíkall að kaupa tvær karamellur. Hann er nú kominn heim til Guðs, þangað sem hann stefndi alla ævi. ´

Á föstudagskvöldið fórum við öll fjölskyldan og systkini Ágústar og fjölskyldur þeirra, nema litli Magnús Elí sem er bara eins árs ennþá og Viðar sem var upptekinn við annað, í Borgarleikhúsið að sjá Footloose í boði tengdaforeldra minna. Mjög rausnarlegt! Þetta var mjög skemmtileg sýning. Krakkarnir skemmtu sér konunglega og voru ömmu sinni og afa mjög þakklát fyrir boðið. Eftir sýningu buðu þau (tengdó sko.. ekki krakkarnir :) okkur svo heim til sín í vöfflur og mjólk. Mmmm...

Áðan var ég að uppfæra myndasíðuna okkar á www.ljosmyndir.tk - fullt af myndum frá sumrinu.

Hér fyrir neðan má svo sjá myndir af stóru fjölskyldunni í Blikahöfðanum og prinsessunni sem fékk sitt fallega nafn í dag:





Þangað til næst.... Hrafnhildur

24.7.06

bloggleti... :)

Vá... furðulegt hvað maður verður blogglatur yfir sumartímann..
Við erum búin að fara í frí og ferðast helling. Fórum norður fyrstu vikuna í júlí, á Skagann, vorum fyrstu nóttina við Langavatn á Skaga og veiddum 25 góðar bleikjur, 1-4 punda fiskar. Það var geggjað ;) Líka gaman að allir voru að veiða. Um kvöldið tókum við 10 stk og allt á maðk og krakkarnir voru rosadugleg. Veiddu 3 og 4 fiska, beittu sjálf og gerðu að fiskunum líka! Daginn eftir fengum við 15 stk. alla á flugu. Ágúst fékk 13 á flugustöngina og ég tvo á flotholt og flugu hehe. Það var slatti af mýflugum þarna og ein þeirra át mig! Oj.. vont.
Þaðan fórum við svo á Siglufjörð og gistum þar. Ótrúlega flott aðstaðan á tjaldsvæðinu þar, góð þjónusta og allt til fyrirmyndar... mæli með því. Síðan fórum við á Ólafsfjörð og hittum hana Björgu sem var með okkur á Tenerife og eins krakkana þeirra... Heiðar, Trausta og Petreu. Spáin var síðan ekkert spes næstu dagana á Norðurlandi svo við brunuðum í bæinn og vorum eina nótt heima áður en við skelltum okkur á Fitina.
Á Fitinni var auðvitað blíðskaparveður og komum við öll systkinin þangað þessa helgi. Mamma og pabbi eru búin að vera svakalega dugleg í sumar við að endurnýja pallinn, skrapa og bera á húsið og byggja heilt nýtt hús á lóðinni! Ótrúlega flott hjá þeim. Við réttum þeim litla putta þessa helgi en það er nú bara dropi í hafið sko. Við Ágúst vorum fram á mánudag hjá þeim og kláruðum litla húsið með þeim og héldum svo af stað austur fyrir land. Stefnan var á Atlavíkina of corzzz... því við erum alltaf í bongó þar :) Lilja Björk, Óskar og börnin þeirra voru líka á leið þangað svo við fórum í rólegheitunum að Vík og þaðan inn að Þakgili sem er btw geggjaður staður! Gistum þar um nóttina og lögðum síðan í samfloti við Lilju og Óskar austur í Hallormsstað. Og viti menn... veðrið klikkar ekki þar. Á meðan næstum allir landsmenn voru í roki og rigningu láum við í sólbaði í yfir 20 gráðu hita. Ekki laust við að maður sé orðinn dálítið útitekinn ha... ;)
Eftir 4 daga í bongó var spáin ekki nógu góð fyrir laugardaginn... sem við ætluðum að nota til að keyra heim, rok og rigning, svo við lögðum af stað seinni part föstudags og keyrðum alla leið í höfuðborgina. 10 stk. tímar á leiðinni! Við nefnilega þurftum að mæta í vinnu á mánudeginum.
En þetta hefur verið frábært frí í alla staði.
Þessa helgi ætluðum við svo að vera heima því Ágúst var að vinna í fyrradag (lau) og Margrét að vinna alla helgina. En Gunni og Þrúður voru í útilegu í Miðdal við Laugarvatn og við skelltum okkur bara til þeirra. Þar voru líka Unnur og Hanna (systur Gunna) með sínar fjölskyldur og úr varð skemmtilegasta útilega. Við vorum aldrei þessu vant alveg barnlaus! Rakel skaut skjólshúsi yfir Margréti og Haukur fór í landsveitina með Sebastíani vini sínum, syni Sævars.
Nú er komið mánudagskvöld og ég ætlaði ekkert að blogga... bara segja hæ.. hehe en svona er þetta. Er að vinna í að setja fleiri myndir á ljósmyndasíðuna, bætti nokkrum tenglum við hér til hægri, þ.á.m. að síðunni hennar Ástu Margrétar og þar má finna fullt af myndum af litlu nýfæddu prinsessunni. Njótið vel...

Smásýnishorn af Atlavík meðan það rignir eldi og brennistein í höfuðborginni ;)



Hrafnhildur flökkukind...