28.1.07

stífla

Úfff... ég veit ekki hvað ég er búin að gera margar tilraunir til að setjast niður og blogga smá. Byrja alltaf, skrifa nokkrar línur, stroka út og hætti við...

Það má eiginlega segja að heilmikið hafi gerst hjá okkur í janúar. Strax eftir áramótin var Ágúst eitthvað að skoða fasteignavef mbl.is og sá íbúð sem okkur leist bara nokkuð vel á. Og til að gera langa sögu stutta þá erum við búin að kaupa þessa íbúð! Þetta er raðhús á þremur hæðum... (jájá veit að það getur verið þreytandi að vera á mörgum hæðum :) 278 fermetrar með bílskúr. Fermetraverðið var frekar ódýrt, við borgum 39,5 millur fyrir íbúðina. Við erum búin að setja okkar á sölu og biðjum nú Guð að hjálpa okkur að selja Krókabyggð fljótt og vel. Þið megið alveg hafa okkur með í bænunum ykkar svo þessi peningamál fari nú öll rétta leið :) Við erum búin að fara fjórum sinnum að skoða og plana og erum ótrúlega spennt yfir þessu öllu saman. Júlíana frænka býr líka í þessari raðhúsalengju svo ég fæ góða nágranna. Fólkið sem við kaupum af er líka einstaklega almennilegt. Þau sögðu okkur að húsið væri blessað í bak og fyrir og okkur finnst það nú ekkert verra sko hehe.

Í janúar skruppum við líka til London. Múrbúðin var með árshátíð þar og fórum við á föstudagsmorgni í kafsnjó og hríð út í Leifstöð. London var skemmtileg, ágætisveður... bjart og 10 stiga hiti. Við fórum í Madame Tussaud's safnið og þetta var fyrsta skipti sem við bæði förum á vaxmyndasafn. Ótrúlega skemmtilegt! Magnað hvað hægt er að gera raunverulegar vaxmyndir. Árshátíðin sjálf var svo kvöldverður á Quaglino's, mjög flottur staður og frábær matur en salurinn var soldið stór og hávaðinn mikill þannig að við vorum ekkert lengi á staðnum eftir matinn eins og áætlað var. Ég er nú svoddan félagsskítur orðin þegar kemur að djammi að ég var alsæl með að komast heim á hótel og fá mér bara einn Guinnes bjór og svo að sofa. (Mér finnst ég ekki geta farið til Bretlands án þess að fá mér smakk af Guinnes ;) Á sunnudeginum fórum við Ágúst svo í Sightseeing ferð í opnum strætó, hrikalega gaman... dálítið kalt samt. Um kvöldið flugum við heim með Icelandair, hristumst dálítið á leiðinni en það var bara skemmtilegt :) Það eina sem skyggði á þessa annars skemmtilegu ferð var að ég var með eyrnabólgu allan tímann!
Málið er að á Nýársdag fékk ég illt í eyrað, fór samt ekki til lækis fyrr en 3. jan. Ok... eyrnabólga... en þessi eyrnabólga var í mér, ásamt fleiri hliðarsjúkdómum eins og ofholdgunarflipi í eyrnargöngunum sem gerði það að verkum að eyrað lokaðist alltaf og ég varð heyrnarlaus... og eftir London ferðina (sem var by the way 12.-14. jan.) var komin sveppasýking í eyrað á mér ofaná allt saman! Ég þurfti því í heila viku að fylla stóra sprautu af blöndu af sjúkrahússpritti, borðediki og vatni og sprauta af krafti inn í eyrað! Því sveppir hata víst edik og alkóhól. Það var fyrst í vikunni sem leið sem allt fór að verða normal aftur í þessu blessaða eyra mínu. Ég veit ekki hvað tekur við næst... síðast var það tönnin, svo eyrað... á ég von á því þriðja fljótlega? Vonandi ekki...

Þessa helgina erum við fjölskyldan búin að vera á fullu að létta aðeins á íbúðinni okkar svo það verði huggulegra hjá okkur þegar við erum að sýna húsið. Margar Sorpuferðir og ferðir í bílskúrinn sem við leigjum með tengdó. Og vitið þið hvað...? Bílskúrinn er búinn að vera að fyllast hægt og rólega af alls konar drasli frá okkur alveg síðan síðasta vor... og ég sakna ennþá einskis... Af hverju á maður svona mikið af drasli sem maður hefur ekkert með að gera???

Well... nóg í bili... hafði af að klára þetta án þess að hætta við hehe..

Hrafnhildur bílskúrseigandi tíhíhí...

PS. Fullt af nýjum myndum á myndasíðunni :)