26.9.06

Þula hetja

Þetta hefur verið langur dagur. Ég var að koma heim af Alfa námskeiði sem er rosalega skemmtilegt námskeið. FULLT af skemmtilegu fólki og frábært umræðuefni. Hugurinn var samt ekki alveg 100% á staðnum því hún Þula okkar fór í aðgerðina í morgun og var heima grátandi... Aðgerðin gekk að óskum þar sem borað var í beinin sitt hvoru megin við hnjáliðinn og nælonband strengt á milli... sem sagt nýtt krossband. Hún kom svo heim kl. 18:30 greyið og Margrét tók hana undir sinn verndarvæng á meðan við fórum á Alfa. Hún (Margrét) var búin að ná í koddann sinn og teppi og lá hjá henni í allt kvöld. Þula greyið er búin að gráta heilmikið. Ágúst fór svo með hana út í garð og náði að fá hana til að gera stykkin sín. Hún er líka með risastóran skerm yfir höfuðið til þess að hún geti ekki sleikt eða nagað skurðinn. Það sem kom mér á óvart við þetta er að það eru engar umbúðir yfir skurðinum, frekar ógeðfellt að sjá.
Í dag var líka langur dagur í vinnunni því ég var að vinna til kl. að verða 6, stutt í útborgun og stór mánuður.
Læt fylgja mynd af hetjunni minni.



20.9.06

Mikið að gera

Það er búið að vera þó nokkuð mikið að gera hjá mér undanfarna daga og vikur. Góðar fréttir, slæmar fréttir og allur pakkinn bara.
Ég kannski byrja á því að segja ykkur frá henni Þulu okkar. Hún hefur verið mjög lengi eitthvað skrítin í hægri afturfætinum eftir gönguferðir, stungið við og ekki liðið vel. Við fórum með hana í röntgen myndatöku fyrir ca 2 mánuðum því við vorum hrædd um að þetta væri kannski mjaðmalos þótt það væri eiginlega mjög ólíklegt, en læknirinn sagði að það væri ekkert að henni. Á föstudaginn síðasta fóru svo Ágúst og Margrét í göngutúr með hana og hún hljóp um allar trissur eins og kvíga að vori! Hún fékk svo einhvern slynk á sig þegar hún lenti í holu og steig ekki í fótinn alla helgina. Á mánudaginn fór hún til dýralæknis og þar kom í ljós að hún er með slitið krossband á hné!!! Þetta þýðir að hún þarf að fara í aðgerð á þriðjudaginn kemur þar sem verður borað í beinin sitthvoru megin við liðinn og strengdur nælonstrengur yfir. Hún á víst aldrei eftir að verða söm eftir þetta greyið og má ekki fara í gönguferðir eða neitt í langan tíma. Svo þurfum við að passa að hún verði ekki of þung og ég veit ekki hvað og hvað. Ótrúlega sorglegt eiginlega... en við elskum hana samt :)
Við fjölskyldan erum nú að taka til í okkur og erum farin að stunda kirkjuna okkar reglulega aftur. Við hjónin erum á Alfa námskeiði á þriðjudagskvöldum og á miðvikudögum förum við á fjölskyldusamveru, "súpu og brauð" eins og það er kallað :) Þar eru krakkarnir í Royal Rangers unglingastarfi á meðan fullorðna fólkið hlustar á Biblíukennslu, Alfa 3. Svo förum við náttúrulega á samkomur á sunnudögum. Þetta leggst rosalega vel í mig og ég trúi því að okkur eigi eftir að líða mjög vel með þetta.
Ég er alvarlega að hugsa um að "play stupid" næst þegar ég er spurð hvort ég geti eitthvað í tölvum hehe... það er óendanlega mikið að gera í þeim bransa! Við vorum um helgina með 6 tölvur hjá okkur í viðgerð og fyrir utan það höfum við farið að meðaltali 2-3 sinnum í viku í tölvuheimsóknir til vina og kunningja. Svo er ég með launaða aukavinnu í tölvumálum hjá tveimur leikskólum og einhvern veginn hefur þetta allt hrannast upp í þessum mánuði. Ótrúlegt nokk. En eftir á er þetta nú bara skemmtilegt. Það er ekki eins og ég fari í heimsóknir á færibandi sko. Fer bókstaflega aldrei í heimsóknir og það er að vísu einn galli við það... maður fær ekki sjálfur heimsóknir... :S En ég get bara sjálfri mér um kennt hehe. Og ég á eftir að bæta mig á þeim vettvangi sko... ...einhvern tíma... :)
Hei! Eitt enn... ég er aftur komin í fjarnám :) :) Ákvað að taka 2 fög þessa önnina, ísl503 og lan103, ótrúlega spennandi!

Þessa stundina er ég alveg að kafna úr kvefi... var að koma heim af "súpu og brauði" og get ekki andað með nefinu og varla haldið augunum opnum fyrir höfuðverk. Er bara að hugsa um að fara snemma að sofa. Ég hafði af að hripa nokkrar línur hér inn og er ótrúlega stolt af því.
Farið vel með ykkur svo þið fáið ekki einhverja kvefpest eins og ég.

Hrafnhildur léttgeggjaða...

2.9.06

Lífsþor

"Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun.

Það þarf viljastyrk til að lifa eigin ævi,
einurð til að forðast heimsins lævi,
visku til að kunna að velja og hafna,
velvild, ef að andinn á að dafna.

Þörf er á varúð víðar en margur skeytir.
Víxlspor eitt oft öllu lífi breytir.
Þá áhættu samt allir verða að taka,
en enginn tekur mistök sín til baka.

Það þarf magnað þor til að vera sannur maður,
meta sinn vilja fremur en fjöldans daður,
fylgja í verki sannfæringu sinni
sigurviss, þó freistingarnar ginni."

Höf: Árni Grétar Finnsson